STJÓRN SKÁTAFÉLAGSINS HEIÐABÚA
Sandra Óskarsdóttir
Félagsforingi

Eygló Viðarsdóttir Biering
Sjálfboðaliðaforingi

Aníta Ósk Sæmundsdóttir
Dagskráforingi

Katrín Auðbjörg Aðalsteinsdóttir
Gjaldkeri

Þröstur Sigmundsson
Ritari
FORINGJAR HEIÐABÚA

RAGNHILDUR L GUÐMUNDSDÓTTIR
Drekaskátaforingi
Ragnhildur er starfandi við grunnskólann í Sandgerði og hefu að auki verið skátaforingi lengur en elstu menn muna.

HAUKUR HILMARSSON
Drekaskátaforingi
Haukur starfar sem rágjafi hjá Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum. Hann kom sem foreldri inn í raðir foringja í Heiðabúum og vígðist sem fullgildur foringi haustið 2017

ÞÓRDÍS HALLDÓRA GESTSDÓTTIR
Foringi Drekaskáta
Þórdís, eða Dísa eins og hún er oft kölluð, hóf sinn skátaferil ung að aldri í Skátafélaginu Víkverjum í Njarðvík. Hún kom síðan aftir inn sem foreldri nokkrum árum eftir að hún hætti í Víkverjum sem unglingur. Hún starfar hjá Kaffi Tár í Reykjanesbæ.

Eygló Viðarsdóttir Biering
Fálkaskátaforingi
Eygló er til þess að gera ný í skátastarfinu. Hún hefur á stuttum tíma lokið Gilwellþjálfun, verið viðloðandi fræðsluráð Bandalags Íslenskra Skáta og verið skátaforingi innan Heiðabúa. Hún er menntaður matreiðslumaður og er nú námií feðamálafræði og Þysku (af öllum tungumálum ;)

Anita Margret Duram
Fálkaskátaforingi
Anita er kraftmikil mamma í fullustarfi með þrjá hressa stráka. Anita kom til liðs við Heiðabúa haustið 2017 þegar hún fylgdi sonum sínum í félagið.

Helgi V. V. Biering
Dróttskátaforingi
Helgi er búinn að vera lengi að. Hann byrjaði í skátafélaginu Vogab úm sem var inni í Vogum á Vatnsleysu, það var árið 1977. Helgi Hefur gaman af allri útivist og ferðalögum, sérstaklega um hálendið og ótroðnar slóðir. Hann er þjóðfræðingur og vélvirki

Halldóra Steina B. Garðardóttir
Dróttskátaforingi
Halldóra var lengi vel skátaforeldri og kom inn í starfið þegar börnin voru hætt í skátastarfi og komin aftur til skátastarfa. Halldóra er mikil útivistarmanneskja og fjallageit (Enda er stjörnumerkið hennar Steingeit). Hún er Þroskaþjálfi í grunnskóla

SANDRA ÓSKARSDÓTTIR
Dróttskátaforingi
Sandra er nemi og Rekkaskáti. Sandra hefur verið í skátunum frá því að hún hafði aldur til. Hún hefur farið á nokkur skátamót á erlendri grundu og verið aðstoðarforingi í yngri árgöngum skátafélagsins í nokkur ár.

ÁRNI F. RÚNARSSON
Rekkaskátaforingi
Árni er skáti í gegn. Hann starfar sem húsamiður. Árni hefur verið viðloðandi Heiðabúa frá unga aldri. Sagan segir að hann sofi í náttfötum með Heiðabúamerkinu allan hringinn.

Elísabet Mjöll Jensdóttir
Fálkaskátaforingi
Elísabet er hörku duglegur foringi sem hefur verið viðloðandi Heiðabúa frá því um aldamót. Hún er heimavinnandi húsmóðir sem verður ekki skotaskuld úr því að breyta gömlu skátaskyrtnni sinni svo að hún passi á soninn.

VALDIMAR ÖRN HELGASON BIERING
Rekkaskátaforingi
Valdimar hefur verið viðloðandi skátafélagið Heiðabúa meira og minna (aðalega meira) frá 9 ára aldri. Sagt er að Valdimar sé með áhuga á öllu öðru en boltanum og þó fyrst og fremst á bílum og bátum og flugvélum og skíðum. Valdimar er mikill útivistarmaður og vinnur sem verkstæðisformaður hjá jarðvinnufyrirtæki.